Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Framboðslisti VG og félagshyggju- og umhverfisverndarfólks í Norðurþingi

þá er framboðslistinn kominn fram. Og get ég ekki annað er verið ánægður með útkomu hans. Frambærilegir og góðir kandídatar í hverju sæti.

Varðandi "sameiginlegt framboð" get ekki alveg skilið hvað það á að merkja! jú þarna eru komin saman fólk með frjálshygguna og umhverfið að leyðarljósi.

Vildi nota tækifærið og benda á heimasíðuna okkar vgnordurthing.123.is en hún verður vonandi virk innan tíðar.

 


mbl.is Sameiginlegt framboð í Norðurþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkuveitan er okkar eign

Félagsfundur í Norðurþingsdeild Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs,
haldinn á Húsavík þann 11. nóvember 2009, mótmælir því harðlega að
rafdreifikerfi Orkuveitu Húsavíkur ehf. verði selt til RARIK ohf. og
Orkusölunnar ehf.

Fundurinn skorar á stjórn Orkuveitunnar að fella þennan samning sem ekki er
gerður með vitund eigenda, það er íbúa Norðurþings. Jafnframt skorum við á
kjörna fulltrúa í sveitarstjórn Norðurþings að koma í veg fyrir að þetta
verði að veruleika. Þessi gjörningur hefur ekki fengið lýðræðislega umræðu,
hvorki í samfélaginu né meðal kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn. Engin rök
hafa komið fram sem styðja þessa ákvörðun.

Þegar Orkuveitunni var breytt í eignarhaldsfélag sögðu allir
sveitarstjórnarfulltrúar að alls ekki stæði til að selja Orkuveituna né
hluta hennar. Fundurinn lýsir fullri ábyrgð á hendur meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á þessum gjörningi.


Hvernig er það?

Nú eru allir að skrá sig út hér á moggablogginu sem og að reyna hætta með áskrift af blaðinu Margundavíð. Hvað á maður að gera í þessu? það aðeins tvennt í stöðunni að gera eins og hinir hætta að blogg hér á dabba.is eða halda bara áfram. Og vegna fjöld skilaboða og símhringinga sem að ég hef fengið þá hef ég ákveðið að halda áfram mínum skrifum(sem að eru reyndar ekki miklar) um félaga mína í Fulham FC sem og þau mál líðandi stundar sem að mér þykja umræðuverð. Hendi hér í leiðinni inn smá skoðanakönnun endilega svariði henni. 

Næsta ríkisstjórn!!!

Forsætisráðherra: Jóhanna Sigurðardóttir

Fjármálaráðherra: Steingrímur J. Sigfússon

Félags-og tryggingamálaráðherra: Árni Páll Árnason

Atvinnumálaráðherra: Svandís Svavarsdóttir 

Umhverfis-og samgönguráðherra: Katrín Júlísdóttir

Dómsmálaráðherra: Atli Gíslason

Heilbrigðisráðherra: Helgi Hjörvar

Menntamálaráðherra: Katrín Jakobsdóttir 

Viðskiptaráðherra: Gylfi Magnússon

 


mbl.is Flokksráð VG þingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kíkið á þennann link!

http://framsoknarskolinn.barnaland.is/


VSOP

 ég er á þeirri skoðun að hleypa þyrfti fleiri flokkum að t.d O og P þetta yrði mjög skemmtileg blanda!!!

VSOP


mbl.is Engin þörf fyrir aðra flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn herðir á hengingaról meirihluta sveitastjórnar Norðurþings

þessi frétt er tekin af vef Rúv  

"Orkuveita Húsavíkur gjaldþrota

Orkuveita Húsavíkur er tæknilega gjaldþrota. Tap orkuveitunnar á síðasta ári nam rúmum 702 milljónum króna, og bókfært eigið fé fyrirtækisins er neikvætt um 142 milljónir króna.

Á síðasta ári varð 702 milljóna króna tap á rekstri félagsins fyrir skatta, miðað við tæplega sextíu og þriggja milljóna króna hagnað árið áður. Þar veldur mestu um 645 milljóna króna gengistap af erlendum lánum fyrirtækisins vegna gengishraps íslensku krónunnar í kjölfar bankahrunsins.
Bókfært eigið fé fyrirtækisins er neikvætt um 142 milljónir króna og eiginfjárhlutfall neikvætt um 9,6% í árslok 2008. Sveitarfélagið Norðurþing er eigandi að öllu hlutafé í félaginu, Gunnlaugur Stefánsson er forseti sveitarstjórnar Norðurþings.

Orkuveitan hefur fjárfest mikið í orkufyrirtækinu Þeistareykjum ehf. undanfarið, en fyrirtækið annast orkurannsóknir í Þingeyjarsýslum, með mögulega orkuöflun fyrir Bakkaálver í huga. Gunnlaugur óttast um framtíð Orkuveitu Húsavíkur verði núverandi efnahagsástand þjóðarinnar viðvarandi."

Svo kom frétt hjá rúv um áhyggjur vinstri grænni hér í Norðurþingi:
"Fulltrúi Vinstri-grænna í sveitarstjórn Norðurþings hefur verulegar áhyggjur af fjárhagsstöðu Orkuveitu Húsavíkur. Fyrirtækið var rekið með ríflega 702 milljóna króna tapi á síðasta ári. Fulltrúinn vill að sveitarfélagið, sem er eigandi Orkuveitunnar, hætti að bíða eftir álveri á Bakka og leiti annarra leiða til að hagnast á hluta Orkuveitu Húsavíkur í Þeistareykjum."

 

frettir@ruv.is


góð grein sem að ég fékk sent í pósti í dag

"Til hamingju, sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei verið jafn óvinsæll á Íslandi!

Ekki sakaði að enn ein staðfestingin á því hversu ofurspilltar blóðsugur þeir eru komst á yfirborðið mjög skömmu eftir að þessi hópur varð til.

Þá kom í ljós að flokkurinn og framámenn innan hans höfðu fengið milljónir fyrir að reyna að tryggja að stórfyrirtæki fengju aðgang að náttúruauðlindum Íslendinga til að þau gætu síðan grætt ennþá fleiri milljónir á að selja þær erlendum stórfyrirtækjum.

Þetta hefði auðvitað ekki átt að koma neinum á óvart en um 10% þjóðarinnar virðast hafa tekið andköf: "ha!? er sjálfstæðisflokkurinn spilltur? gengur hann erinda stórfyrirtækja og auðmanna þvert á hagsmuni almennings!? þessu hefði ég sko aldrei trúað!"

Sumir eru auðvitað tregari en aðrir, en við verðum auðvitað að fagna síðbúnum skilningi þessa fólks og bjóða því velkomið inn í heiminn eins og hann er í raun og veru. Þau verða að fá tíma til að jafna sig, því dvöl þeirra í þykjustunnilandi þar sem allir eru góðir og fallegir og vilja bara gefa þeim pening til að verzla var þessu fólki ánægjulegur. Nú þurfa þau hinsvegar að kljást við þá vitneskju að þeir ætluðu ekki bara að svindla á fátæka fólkinu, heldur öllum Íslendingum, þar á meðal þeim. Það hlýtur bara að taka á.

En 20% sitja sem fastast í fantasíuheiminum góða og láta sem ekkert hafi í skorist.

Nú er N1 svikahrappurinn mættur, PR agent hjá starbucks olíuiðnaðarins hjá Íslandi sem var hannaður sérstaklega af genasérfræðingum íhaldsins. Hann kom í heiminn í fæðingardeildinni í Valhöll og var umsvifalaust settur í jakkaföt og bindi og kennt að þylja helstu tuggurnar.

Hlutverk Bjarna Ben II er síðan að viðhalda yfirráðum íslenska konungsveldis Engeyjarættarinnar, en fyrir þá sem ekki vita er hann náfrændi Björns Bjarnasonar og Halldórs Blöndal, auk þess sem Bjarni Ben I er afabróðir hans.

Gæti verið... mögulega að hann muni ganga erinda N1, sem hann hætti ekki að vera stjórnarformaður hjá fyrr en hann bauð sig fram til formanns D og þar sem pabbi hans situr ennþá í stjórn, framyfir hagsmuni almennings? Og gæti verið að það útskýri hversu harkalega hann gengur fram í að reyna að troða fleiri mengandi álsuðupottum í áður óspillta náttúru okkar...

Hversu mikil viðskipti haldiði að eigi sér stað milli N1 og Alcoa eða Rio Tinto Alcan...?

Notum síðasta daginn fyrir kosningar í að halda áfram að sýna samstöðu og höldum þessum eyðileggingaröflum frá því að fá grænt ljós til að ráðskast með líf okkar."

Hvar er Haukur?

Ekki hefur Haukur Gunnarsson nokkur frá Borðeyri bloggað um þessa frétt.....ég bíð bara aðeins það hlítur að koma ða bloggi hjá kallinum.
mbl.is Milljón frá Samvinnutryggingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ránfuglinn í útrýmingarhættu!!!

Ég get ekki séð að eðlilegt sé að styrkja framboð með svona miklum fjárhæðum. Þetta eru einungis styrkir til þess að kaupa fleiri atkvæði í hreiður ránfuglsins. Þessir styrkir voru notaðir til þess að rétta af fjárhag óreiðu- og spilligarhreiðursins eftir síðustu atkvæðakaup í sveitarstjórnarkosningum.

ojbara skiliði þessum peningum og hættiði að benda hver á annann það endar með því að FL-okkurinn í heild sinni verði að segja af sér.


mbl.is Landsbankinn veitti 2 styrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband