4.10.2008 | 07:48
..var þetta tóm vitleysa
Mér finnst nú að Samfylkingin eigi að sjá að sér og nota tækifærið og slíta stjórnarsamstarfinu strax í gær. En hugmynd Davíðs um þjóðstjórn er alveg skoðandi í mínum huga. Samfylkingin hefur ekki náð mörgum kosningaloforðum í gegn á samtarfinu við Sjálfsstæðisflokkinn frekar en aðrir flokkar. En nú er komið að því frjáshyggjan er hrunin og sér ekki fyrir endanum á því. Það á fleira eftir að koma í ljós í næstu viku......
Ræddu aldrei stjórnarsamstarf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Til að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn myndaðu nýja stjórn... það væri ábyrgðarleysi að neyða Sjálfstæðisflokkinn til þess því þeir hafa stjórnarslitavaldið sem liggur hjá forsætisráðherra og Sjálfstæðisflokkur færi aldrei í kosningar með stöðu eins og þeir hafa í skoðanakönnunum. Mundu, Framsókn og Sjallar hafa eins manns meirihluta á þingi.
Jón Ingi Cæsarsson, 4.10.2008 kl. 08:23
Nei ég sé helst fyrir mér þjóðstjórn eins og málin stnada í dag. Það getur enginn einn tekið af skarið og verið leiðandi eins og forsætisráðherra á að vera. Og fannst mér lítið til hans koma í stefnuræðu sinni ef að stefnuræðu skildi kalla. Það eru allir að kalla á stjórn í landinu og það er það sem að við þurfum strax.
Hilmar Dúi Björgvinsson, 4.10.2008 kl. 08:30
Það myndi veikja ríkisstjórn á Íslandi að fá inn afturhaldsíhaldssjónarmið VG... allir vita hvaða gagn væri að Guðna og Frjálslyndir eru í stórfelldum innri vanda.
Snúum okkur að víðtæku samráði stjórnvalda, atvinnulífs, verkalýðshreyfingar, fjármálakerfis og allra þeirra sem hafa getu og styrk til að vinna okkur út úr þessum vanda
Jón Ingi Cæsarsson, 4.10.2008 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.