10.10.2008 | 12:11
...minnkandi eftirspurn á Áli
tekið af frétta vef ruv.is
"Álver á Bakka enn fýsilegt
Hlutabréf í Alcoa Inc., móðurfélag Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði, féllu um tólf prósent á mörkuðum í gær eftir að fyrirtækið tilkynnti um samdrátt í framleiðslu vegna alþjóða lausafjárkreppunar.
Þá hefur fyrirtækið tilkynnt um uppsagnir á 660 starfsmönnum, en uppsagnirnar, samdrátturinn og minnkandi eftirspurn eftir áli hefur vakið upp spurningar um fyrirhugaðar álversframkvæmdir fyrirtækisins á Bakka við Húsavík. Tómas Már Sigurðsson er forstjóri Alcoa Fjarðaráls segir fyrirhugað álver á Bakka enn fýsilegt í augum fyrirtækisins."
Það er að gerast sem að VG var búið að vara við, minnkandi eftirspurn á áli og núna er einungis árið 2008 en hvernig verður þetta þegar að álverið á að fara í gang árið 2015(ef að það gengur eftir).
Það er spurning um að fara að hleypa fleiri fyrirtækjum að en bara Alcoa.
Enn eitt dæmið um það að við séum að missa fyrirtæki annað en hingað á svæðið er fyritækið Greenstone ehf. sem er að fara í Dalvíkurbyggð.
"Netþjónabú á Dalvík?
Dalvíkurbyggð og Greenstone ehf., hafa átt í viðræðum um úthlutun lóðar vegna uppbyggingu netþjónabús í Dalvíkurbyggð, þetta kom fram á fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar í morgun, Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu við Greenstone ehf."
Hvenær hleypum við öðrum að?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.