Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvar er Snorri?

Hvar er þriðja formannefnið?Snorri Ásmundsson

Af hverju fær hann ekki að taka til máls?allavega hefur það farið framhjá mér.


mbl.is Þurfum nýtt sverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyriði það....

Já nú vilja Sjálfstæðismenn fara að skoða "eitthvað annað" nú loksins þegar allt er að komast í þrot í samfélaginu. Ég vona bara að Sjáfstæðismenn hér í Norðurþingi heyri þessa köllun landsfundar sjálfstæðismanna og þurrki álglýjuna úr augunum.
mbl.is 20 þúsund störf og sólarrafhlöður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álið á undan börnunum...???

 

 Með þessu er meirihluti sveitarstjórnar Norðurþings að skerða þá grunnþjónustu sem að þeir voru búnir að lofa að standa vörð um. Skít hér inn bókun meirihlutans við gerð fjárhagsáætlunar 2009:

"Merihluti sveitarstjórnar hefur nú þegar lagt fram aðgerðaráætlun til að bregðast við þessum erfiðu aðstæðum.  Megin markmið aðgerðaráætlunarinnar er að verja grunnþjónustu og störf í sveitarfélaginu eins og unnt er."

Spurning hvort ekki mætti skera niður annarsstaðar t.d. í álmálunum og byrja á að halda í og sinna því fólki sem hér býr nú þegar áður en farið er að vinna í að fá hingað fleira fólk, nema verið sé að miða við að fá hingað barnlaust fólk?

Það er líka frekar svekkjandi að hér séu fjármunum eytt í orkuöflun en svo vísa menn frá þeim sem vilja koma og bíða með álglýjuna í augunum og neita að sjá eða heyra um þær fréttir af fyrirtækjum sem vilja byggja upp þar sem orka er einmitt eins og við höfum yfir að ráða í Norðurþingi. Ef meirihluti sveitastjórnar inni af sama áhuga að því að fá hingað alla atvinnu í stað þess að bíða eftir álinu,  þá er ég viss um að hér kæmu margir vinnustaðir sem gætu byrjað á að nýta þessa orku sem búið er að finna og koma henni í verð.

Meirihluti Norðurþings ætti líka að skoða hvort ekki megi skera niður í launakostnaði t.d. hjá sveitarstjóra og nefndarmönnum í stað þess að skera niður í skólum byggðarinnar. 

 

 


mbl.is Áhyggjur af barnafólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staðsetning-Norðurþing

Hér er nóg af orku til sölu strax. Og hér ættum við að geta fundið gott landsvæði. Kapalverksmiðju til Norðurþings. Já takk!!!
mbl.is Vilja reisa fyrstu grænu kapalverksmiðju heimsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...á hún ekki að víkja...

Eru menn ekki að tala um endurnýjun á alþingi? Þá finnst mér að hún eigi að stíga til hliðar og hleypa öðrum að.
mbl.is Þorgerður Katrín vill 1.-2. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með landsbyggðina?

Af hverju þurfa öll fyrirtæki að vera sett niður á suðvesturhorni landsins? Þetta er mér alveg hulin ráðgáta. Hvað á að gera við landsbyggðina? Hér í Norðurþingi höfum við til dæmis næga orku frá gufuaflsvirkjunum....sem verða nú sennilega ekkert nýttar á næstu árum.
mbl.is Pappírsverksmiðjan þarf ekki í umhverfismat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kíkið á þetta!

Þetta er forsætisráðherrann okkar

http://www.dv.is/frettir/2008/11/21/ert-thu-ad-rifast-vid-mig/


hvað með íslensk stjórnvöld

Hvernig væri að lækka virðisaukaskatt hér á íslandi þó að ekki væri nema bara á td. þjónustu iðnaðarmanna það mundi nú kanski breyta töluverðu bæði fyrir verkkaupa og verksala. Ef ekkert verður aðhafst þá eigum við það á hættu að missa iðnaðarmenn úr landi.
mbl.is Íhuga að lækka breskan virðisaukaskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

alltof mikill stuðningur...

Þetta finnst mér heldur mikill stuðningur við ríkisstjórnarflokkana miðað við að aðeins tæplega 32% kjósenda styðja þá í þessari stjórn. En miðað við þessa könnun hjá Fréttablaðinu þá hafa þeir 58,4% stuðning þjóðarinnar eða 40 þingmenn og það þýðir einfaldlega að þeir halda velli. Þetta sýnir manni bara að menn segja eitt og gera annað þegar að kjörborðinu kemur. Hvers vegna haldiði að Sjáfsgræðisflokkurinn hafi verið svona legni við völd? vegna þess að fólk er svo fljótt að gleyma og kemur ævinlega skriðandi aftur heim!!!

Ég segi breytum þessu kerfi og förum að kjósa menn og landið að einu kjördæmi!!!


mbl.is 31,6% stuðningur við stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kosningar fyrir jól

Samkvæmt þessu er að verða raunhæfur möguleiki á breyttum stjórnarháttum í landinu. Ég segi kjósum fyrir jól!!!


mbl.is Minnihluti styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband